Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ósáttur með vallaraðstæður á HM - „Boltinn skoppar eins og kanína"
Mynd: EPA
Leikmenn og þjálfarar á HM félagsliða hafa verið mjög gagnrýnir á aðstæðurnar á mótinu sem haldið er í Bandaríkjunum.

Mikið hefur verið rætt og ritað um hitann sem er hátt í 40 gráður oft á tíðum. Varamenn Dortmund tóku sér m.a. til og horfðu á leik liðsins gegn Mamelodi Sundowns í klefanum þar sem þeir gátu ekki verið úti í hitanum.

Luis Enrique, stjóri PSG, gagnrýndi völlinn eftir 2-0 sigur á Seattle Sounders í gær.

„Það sem skiptir máli er staðan á vellinum. Ég segi þetta þrátt fyrir að við unnum, við eigum langt í land miðað við evrópska velli. Þeir eru góðir en boltinn skoppar eins og kanína. Þetta er augljóst vandamál, ekki afsökun. Við getum ekki spilað eins vel og við viljum. FIFA verður að taka það til greina, ekki bara á völlunum heldur á æfingum líka," sagði Enrique.

„Ég sé ekki NBA völl með holum fyrir mér. Við spilum á völlum. Ef við gagnrýnum þetta á það skilið að breytast."
Athugasemdir
OSZAR »